Innlent

Þýfi á uppboð

"Öllu þýfi sem við gerum upptækt við rannsókn mála er skilað til eigenda sinna en fer annars á hið árlega uppboð," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Árlega nær lögregla til baka miklu af þýfi misyndismanna en það skilar sér ekki alltaf aftur til eigenda sinna. Geir Jón segir talsvert um að munir þeir er náist aftur sér skemmdir eða ónýtir og er þeim þá hent. "Ef hins vegar ekki tekst að finna réttmæta eigendur fara þeir á uppboð lögreglunnar en eitt slíkt verður einmitt í næsta mánuði."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×