Innlent

Óvenju gróf líkamsárás

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrrdag mál á hendur manni sem sakaður er um að hafa valdið öðrum manni miklu líkamstjóni á veitingastaðnum Kaffi Austurstræti með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut fjölmarga djúpa skurði á andlit og háls. Sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir, fulltrúi Ríkissaksóknara, að um óvenju grófa líkamsárás hefði verið að ræða en ákærði hélt því fram að um óhapp hefði verið að ræða. Aðalmeðferð í málinu mun hefjast í næsta mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×