Innlent

Valgerður áfrýjar dómnum

Valgerður Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hyggst áfrýja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur en í fyrradag féll dómur henni í óhag í skaðabótamáli hennar gegn ríkinu. Valgerður fór þar fram á bætur vegna missis launa sem og skaðabóta eftir að hún hætti sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu að kröfu Árna Magnússon, félagsmálaráðherra. Hélt hún fram að hún hefði verið þvinguð til þess að segja starfinu lausu en dómurinn féllst ekki á það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×