Innlent

Tekinn á 162 km hraða

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ungan ökumann á 162 kílómetra hraða á Norðurlandsvegi í gærkvöldi en alls stöðvaði hún fimmtán ökumenn vegna hraðaksturs á þremur klukkustundum. Flestir voru á 105-110 kílómetra hraða en nokkrir á yfir 120. Nokkur erill var einnig hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Sex ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um ölvun við akstur, og lögreglan í Kópavogi tók einn stút undir stýri. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×