NBA í nótt 7. apríl 2005 00:01
Nokkrir leikir voru á dagskrá í NBA í nótt og spennan eykst jafnt og þétt fyrir úrslitakeppnina sem hefst síðar í mánuðinum. Fá óvænt úrslit litu dagsins ljós og þau lið sem eru að berjast um efstu sætin í úrslitakeppninni, unnu öll leiki sína. Spútniklið Chicago Bulls stefnir hraðbyri að heimavallarréttinum í fyrstu umferðinni, en í nótt náði liðið að leggja Orlando Magic á útivelli í framlengdum leik, 102-101. Kirk Hinrich skoraði 25 stig fyrir Bulls, en Steve Francis skoraði mest heimamanna eða 28 stig og átti auk þess 11 stoðsendingar. Philadelphia sigraði Charlotte 106-103 í hörkuleik, þar sem skorunarmaskínan Allen Iverson setti 48 stig og gaf 8 stoðsendingar, en Iverson hefur verið sjóðandi heitur í vetur og ætlar sér ekki að missa af úrslitakeppninni. Denver Nuggets eru heitasta liðið í NBA þessa dagana og í nótt vann liðið sinn fimmta leik í röð og hafa nú unnið 11 af síðustu 12. Denver lagði New Orleans 94-83 í nótt, þar sem Carmelo Anthony var stigahæstur með 18 stig og Marcus Camby skoraði 11 stig og hirti 13 fráköst í annars jöfnu liði Denver, sem er það lið sem enginn vill mæta í úrslitakeppninni í ár. Lið Minnesota heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppnina, en þær vonir eru meira bundnar við að önnur lið í vesturdeildinni misstígi sig, því stutt er eftir af tímabilinu. Liðið virðist þó vera að finna taktinn um þessar mundir og í nótt kjöldrógu þeir arfaslakt lið Utah Jazz, 111-86 á heimavelli sínum. Kevin Garnett skoraði 18 stig, hirti 16 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í liði Minnesota. San Antonio Spurs sigruðu LA Clippers 91-82 og halda sæmilegum dampi þrátt fyrir fjarveru Tim Duncan, en liðið stefnir á efsta sætið í vesturdeildinni. Argentínski snillingurinn Manu Ginobili var atkvæðamestur í liði Spurs með 16 stig. Meistarar Detroit Pistons lögðu lið Washington 105-93, ekki síst fyrir stórleik Ben Wallace, sem fann fjölina sína sóknarlega aldrei þessu vant og skoraði 21 stig og hirti 18 fráköst.
Körfubolti Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Martin magnaður í fyrsta sigrinum Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Bjarki með átta gegn Brössum Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn