Ingimundur með ellefu mörk gegn KA 5. apríl 2005 00:01
ÍR-ingar unnu KA-menn, 29-26, í fyrsta leik liðanna í 8 liða úrslitum DHL-deildar karla í kvöld. ÍR-ingar höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleik og fram undir miðjan seinni hálfleik þegar fjögur KA-mörk í röð fjögurra mínútna kafla komu hinu unga Akureyrarliði aftur inn í leikinn. Lengra komust norðanmenn þó ekki þrátt fyrir mikla baráttu. KA jafnaði leikinn fimm sinnum á lokakaflanum en komst aldrei yfir og ÍR-ingar voru síðan sterkari á spennandi lokamínútum og eru komnir 1-0 yfir í einvíginu. Þar má ekki síst þakka góðri innkomu markvarðarins Ólafs Hauks Gíslasonar sem varði 7 skot á síðustu 12 mínútum leiksins sem og mikilvægum mörkum Ólafs Sigurjónssonar. Það var samt Ingimundur Ingimundarson sem var yfirburðarmaður í liðinu en hann dróg vagninn í sókninni og þurfti margoft að taka á skarið. Það mátti sjá á kappanum eftir leik að fyrsti sigurinn í úrslitakeppninni í ár kostaði mikla fyrirhöfn en Ingimundur skoraði 11 mörk úr 20 skotum í leiknum. "Þetta tók á. Það verður bara að segjast eins og er að við vorum ekki að spila nægilega góðan bolta. Það var kannski smá ryð á þessu eftir páskahléð því mér fannst KA ekki vera að spila góðan bolta heldur," sagði Ingimundur sem var feginn að sigurinn var í höfn. "Þetta var hörkuleikur og það var mjög sterkt að vinna þetta. Við þurfum samt virkilega að vinna í okkar leik til þess að taka þá fyrir norðan því það er mikið sem við þurfum að bæta," sagði Ingimundur sem eins og fleiri í liðinu er að spila meiddur en Ingimundur lét skaddaðan liðþófa ekkert hafa áhrif á sig. "Það þýðir ekkert að vera að spá í þessi meiðsli. Þetta eru bara síðustu leikirnir og kannski síðustu leikirnir hjá nokkrum í liðinu á Íslandi í langan tíma og ég veit að menn eiga eftir að gefa allt í þetta meðan þeir geta." Jóhannes Bjarnason þjálfari KA-manna sá sína menn aldrei komast yfir í leiknum en þeir fengu þó góð tækifæri til þess á lokakaflanum. "Við vorum gremjulega nálægt að ná þessu því það er ekkert auðvelt að vinna sig inn í leikinn á þessum velli. Við áttum alveg dauðasjens til þess að klára þetta og komust alveg upp að þeim þrátt fyrir mýgrúa af mistökum. Það er lítið hægt að segja þótt að þessir tittir séu að gera mistök. Það sjálfsagt varðar við barnaverndarlög að vera að skamma þá of mikið," segir Jóhannes í léttum tón en auk góðrar markvörslu Hafþórs Einarssonar í markinu þá var hin unga skytta Magnús Stefánsson allt í sókninni með sjö góð mörk. "Magnús var okkar besti sóknarmaður og breytti áferðinni á leiknum hjá okkur þegar hann komst í gang," segir Jóhannes eftir leik en næsti slagur liðanna er á fimmtudagskvöldið í KA-húsinu. "Við reiknum með hörkuleik á fimmtudaginn fyrir norðan og erum nátturulega ekkert búnir að vinna hann. Við tökum bara einn leik fyrir í einu. Við erum á lífi ennþá." ÍR-KA 29-26 (14-11)Gangur leiksins: 6-2 (9 mín), 8-4, 8-7, 12-9 (21 mín), 13-10, 13-11, (14-11), 15-11, 16-12, 18-13 (36 mín), 19-14, 19-16, 21-17 (41 mín), 21-21 (47 mín), 22-22, 23-23, 25-25, 28-25 (58 mín), 28-26, 29-26. Mörk ÍR: Ingimundur Ingimundarson 11/1 (20/1 skot, 4 stoðsendingar) Ólafur Sigurjónsson 4 (8), Ragnar Már Helgason 3 (4), Tryggvi Haraldsson 3 (4), Bjarni Fritzson 3 (9/1, 5 stoðsendingar), Hafsteinn Ingason 2 (3), Hannes Jón Jónsson 2/1 (5/1), Fannar Þorbjörnsson 1 (3). Varin skot hjá ÍR: Hreiðar Guðmundsson 12 (af 34 eða 35 prósent), Ólafur Haukur Gíslason 7 (11/1 eða 64 prósent) Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Ragnar 2, Bjarni, Hannes, Ólafur, Ingimundur, Tryggvi). Vítanýting: 2 af 3. Fiskuð víti: Tryggvi Haraldsson 2, Ólafur Sigurjónsson. Brottvísanir: 4 mínútur. Mörk KA: Magnús Stefánsson 7 (12), Jónatan Þór Magnússon 5 (7, 6 stoðsendingar), Halldór Jóhann Sigfússon 5/1 (7/1, 5 stoðsendingar), Þorvaldur Þorvaldsson 4 (5), Nikola Jankovic 2 (7), Hörður Fannar Sigþórsson 1 (1), Sævar Árnason 1 (4), Ragnar Njálsson 1 (4), Andri Snær Stefánsson 0 (2). Varin skot hjá KA: Hafþór Einarsson 21 (50/2 eða 42 prósent). Hraðaupphlaupsmörk: 5 (Jónatan 2, Jankovic 2, Magnús) Vítanýting: 1 af 1. Fiskuð víti: Jónatan Þór Magnússon. Brottvísanir: 10 mínútur.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Í beinni: Crystal Palace - Man. Utd | Er United komið á rétta braut? Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju Eðla rölti inn á brautina á æfingu „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Sjá meira