Innlent

Handsamaði tvo þjófa

Lögreglan í Reykjavík hafði hendur í hári tveggja þjófa sem brutust inn í tölvuverslun í Austurborginni á sjöunda tímanum í morgun og höfðu meðal annars á brott með sér tvo skjávarpa. Þjófavarnakerfi í versluninni gerði viðvart um innbrotið og brást lögregla skjótt við með þeim árangri að þjófarnir gista nú fangageymslur og þýfið er komið í leitirnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×