Innlent

Íbúar kanni garða og geymslur

Leit að Brasilíumanninum, sem hefur verið saknað frá því í gær, hefur enn ekki borið árangur. Maðurinn fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Björgunarsveitir halda áfram að leita að honum fram á kvöld og biður lögreglan á Selfossi íbúa í og við Stokkseyri og Eyrarbakka og í Gaulverjabæjarhreppi og Villingaholtshreppi að kanna útihús, garða og geymslur til að athuga hvort eitthvað óvenjulegt sé að finna þar og hafa samband við lögregluna ef svo er í síma 480-1010. Maðurinn sem leitað er að heitir Ricardo Correia Dantas. Hann er 170 til 172 sm á hæð, grannvaxinn með svart hár og stuttklipptur. Hann var klæddur ljósum jakka, með svarta húfu og í svörtum lágbotna íþróttaskóm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×