Innlent

Leita enn Brasilíumanns

Björgunarsveitir í Árnessýslu leita enn að 28 ára Brasilíumanni sem saknað hefur verið frá því í gær. Hann fór í gönguferð frá Eyrarbakka um klukkan tíu í gærmorgun en ekkert hefur til hans spurst síðan. Björgunarsveitir leituðu að manninum í gærkvöld og nótt en leit var hætt á fimmta tímanum. Hún hófst aftur fyrir hádegi í dag og hefur verið leitað í og við Stokkseyri bæði á sjó og landi. Um 50 björgunarsveitarmenn eru við leit að manninum, en hann er dökkur yfirlitum, um 170 sm á hæð og í ljósum buxum og jakka en með dökka húfu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×