Innlent

Útigangsmanni bjargað úr eldi

Útigangsmaður var fluttur á sjúkrahús í fyrrinótt vegna gruns um að hafa orðið fyrir reykeitrun. Maðurinn var í húsi sem brann við Mýrargötu. Reykkafari slökkviliðsins fann manninn. Vaktmaður segir slökkviliðið alltaf leita af sér allan grun þegar eldur kvikni í húsum. Ekki sé ljóst hver upptök hans voru. Það sé í rannsókn. Vel gekk að slökkva eldinn. Slökkviliðið kom á vettvanginn rúmlega hálf fjögur og eldurinn var slokknaður korter yfir fjögur. Húsum í kring stafaði ekki hætta af eldinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×