Viðskipti innlent

Nýr ritstjóri Viðskiptablaðsins

Gunnlaugur Árnason, blaðamaður Reuters-fréttasamsteypunnar í Lundúnum, hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins. Jónas Haraldsson, sem gengt hefur starfi ritstjóra frá áramótum, mun taka við starfi fréttastjóra þegar Gunnlaugur kemur til starfa í byrjun maí. Mun Gunnlaugur móta ritstjórnarstefnu blaðsins og stjórna fréttaflutningi. Í tilkynningu frá Viðskiptablaðinu segir að Gunnlaugur hafi víðtæka reynslu af blaðamennsku bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Frá því í október 2001 hefur hann starfað hjá Reuters í London þar sem hans sérhæfing lá í fjármálafréttum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×