Heilsa

Lax með spínati og kókós

Það segir sig sjálft að réttur eins og þessi, sem samsettur er úr hráefnunum sem hvert fyrir sig er ómótstæðilegt sælgæti, getur ekki orðið annað en frábær. Samt sem áður er það galdur sósunnar sem gerir útslagið. Hárfínt jafnvægi af sterku, súru og sætu og bragðlaukarnir lifna við!

4 laxasneiðar

1 sæt kartafla

1/2 poki ferskt spínat

1/2 dós kókósmjólk

1 tsk. rautt karrímauk

1 msk. fiskisósa

safi úr 1/2 límónu

1 tsk. pálmasykur

salt og pipar

ólífuolía

Smyrjið botninn á ofnföstu fati með ólífuolíu og setjið síðan allt spínatið í fatið. Raðið laxasneiðunum ofan á spínatið. Saltið og piprið.

Flysjið sætu kartöfluna og skerið hana í strimla og dreifið þeim jafnt yfir réttinn.

Blandið saman í sér skál: kókósmjólk, karrímauki, fiskisósu, límónusafa og pálmasykri.

Hrærið vel í þar til karrí og sykur hafa leyst upp. Hellið sósunni yfir réttinn og bakið í 200 gráðu ofni í 25 til 30 mínútur.

Berið fram með soðnum hrísgrjónum og/eða góðu salati.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.