Sport

Ranieri kærði Valencia

Claudio Ranieri hefur kært sitt gamla félag, Valencia, en kappinn var rekinn úr þjálfarastöðu liðsins eftir aðeins 8 mánaða dvöl. Ranieri hefur staðið í stappi við stjórn liðsins en sögur herma að hann fari fram á 8,1 milljón evra í skaðabætur, sömu upphæð og var í boði fyrir árin þrjú sem hann samdi við liðið í upphafi. Stjórn Valencia þverneitar hins vegar að borga þá upphæð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×