Viðskipti innlent

40 um hverja Lambaselslóð

Alls eru 40 umsóknir um hverja lóð í Lambaseli í Breiðholti. Borginni hafa borist um 1200 umsóknir um einbýlishúsalóðirnar þrjátíu. Athygli vakti þegar ónafngreindur auglýsti í Fréttablaðinu eftir því að kaupa lóð af þeim sem fengi úthlutað. Fyrsta dag auglýsingarinnar heimsóttu um 1.200 manns heimasíðu ónefnda mannsins. Nú hafa nær eitt hundrað til viðbótar skoðað síðuna. Í auglýsingu borgarinnar stendur að sá sem framselji úthlutaða lóð geti ekki átt von á annarri byggingarlóð í Reykjavík.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×