Lífið

Sölumenn óttast um hag sinn

Sölumenn á fasteignasölum óttast að löggiltir fasteignasalar séu að reyna að bola þeim út úr starfsgreininni. Það er ekki rétt, að sögn fasteignasala, en báðir aðilar eru sammála um að breyta þurfi lögunum um fasteignaviðskipti. Í miðopnu Fréttablaðsins í dag má sjá heilsíðuauglýsingu þar sem skorað er á starfsmenn á fasteignasölum að bindast samtökum. Ástæðan er úrskurður sem Félag fasteignasala samþykkti á aðalfundi þess efnis að það væri góð fasteignasöluvenja að löggiltir fasteignasalar sæju um flest það er lýtur að sölu fasteignar. Guðmundur Andri Skúlason, sem starfar sem sölumaður á fasteignasölu, segir að sölumenn séu einungis að benda á málflutning löggiltra fasteignasala um að sölumönnum sé ekki treystandi á fasteignasölum. Ragnar Thorarensen, löggiltur fasteignasali, segir alls ekki ætlunina að bola ófaglærðum starfsmönnum út en það sé eðlilegt að hvetja til þess að löggildir fasteignasalar sjái um sem mest. Hann segir að undanfarin ár hafi mjög margir komið inn á markaðinn og það hafi verið mikið um svokallað leppun, það er að menn hafi fengið aðila til þess að bera ábyrgð á fasteignasölum, og ýmis leiðinleg mál hafi komið upp. Vilji sé fyrir því að auka menntun og fagmennsku í greininni og þess vegna sé stefnan að einhvern tíma vinni eingöngu löggiltir fasteignarsalar við sölu fasteigna. Það er þó ómögulegt samkvæmt lögum því þar segir að til þess að mega hefja nám til löggildingar verði viðkomandi að hafa starfað á fasteignasölu í tólf mánuði. Og ekki bara við að horfa á. Lögin um fasteignasölu eru dálítið misvísandi þar sem segir annars vegar að fasteignasalar megi ráða starfsfólk til að sinna störfum á ábyrgð fasteignasalans en hins vegar segir að fasteignasalinn eigi að sjá um nær allt saman sjálfur. Guðmundur og Ragnar eru sammála um að það þurfi að endurskoða löggjöfina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.