Viðskipti innlent

Vísitala neysluverðs hækkar

Vísitala neysluverðs í nú mars hækkaði um 0,75 prósent frá fyrra mánuði og er nú 241,5 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,35 prósent á sama tíma. Vetrarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,2 prósent. Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 3,3 prósent en verð á bensíni og olíu hækkaði um 2,7 prósentustig. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um eitt prósent, sem jafngildir 4,3 prósenta verðbólgu á ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×