Sport

Woodgate frá út tímabilið

Jonathan Woodgate, leikmaður Real Madrid, mun að öllum líkindum missa af því sem eftir er af tímabilinu samkvæmt íþróttadeild BBC. Woodgate, sem gekk til liðs við Real frá Newcastle fyrir 13,4 miljónir punda í ágúst á síðasta ári, hefur ekkert leikið með liðinu vegna rifins liðþófa á hné. Hinn 25 ára gamli Woodgate varð fyrir meiðslunum í apríl á síðasta ári en útlit var fyrir að hann myndi leika á ný í október. Meiðslin tóku sig upp að nýju og ferill hans því kominn í uppnám á ný. Hann mun líklega gangast undir skurðaðgerð í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×