Sport

Barcelona náði sjö stiga forystu

Barcelona náði í gærkvöldi sjö stiga forystu í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Real Zaragosa, 4-1, á útivelli. Real Madrid, sem er í öðru sæti með 47 stig, fær tækifæri í dag til að minnka muninn þegar liðið mætir Osasuna á útivelli en leikur liðanna verður sýndur á Sýn og hefst klukkan sex. Valencia, sem vermir þriðja sætið með 38 stig, fór illa að ráði sínu á heimavelli í gær þegar liðið beið lægri hlut fyrir Deportivo, 2-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×