Sport

Þór vann Val

Í úrvalsdeild karla í handknattleik bar Þór Akureyri sigurorð af Val fyrir norðan í gær, 30-26, en Valur hafði eins marks forystu í hálfleik. Sindri Haraldsson var markahæstur norðanmanna með 10 mörk en hjá Val skoraði Heimir Örn Árnason 8 og Baldvin Þorsteinsson skoraði. 6. KA-menn eru efstir í deildinni með 9 stig en síðan koma Valur, HK og ÍR með 8 stig. Það var einn leikur í 1. deild karla í gær. Afturelding vann Selfoss , 35 - 31.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×