Sport

Árni Þór til Göppingen

Árni Þór Sigtryggsson, leikmaður Þórs í handknattleik, er á leið til þýska liðsins Göppingen en forráðamenn liðsðins hafa sýnt Árna mikinn áhuga. Til stóð að Árni færi fyrir áramót en hann varð fyrir því óhappi að nefbrotna í æfingaleik og því var förinni frestað fram yfir áramót. Fleiri lið hafa sýnt Árna áhuga en ekkert hefur fengist staðfest varðandi tilboð. Þess má geta að Árni er bróðir Rúnars Sigtryggssonar landsliðsmanns í handknattleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×