Innlent

Borgin í mál við olíufélögin

Reykjavíkurborg er kominn í hóp fyrirtækja og félagasamtaka sem undirbúa skaðabótamál á hendur olíufélögunum vegna verðsamráðs. Viðskiptin sem um ræðir nema hundruðum milljóna króna.  Borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra þessa efnis í dag. Það byggir á áliti Vilhjáms H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmanns sem telur að Reykjavíkurborg og fyrirtæki borgarinnar eigi rétt á skaðabótum vegna útboðs á vegum borginnar fyrir Strætisvagna Reykjavíkur, Malbikunarstöðina og Vélamiðstöðina árin 1997 til 2001. Í skýrslu samkeppnisstofnunar segir að ljóst sé að Skeljungur hafi strax árið 1995, eða ári fyrir útboðið, undirbúið samstarf olíufélaganna vegna útboðs Reykjavíkurborgar. Há forstjóra Skeljungs fannst til dæmis skjal þar sem fram kemur hvaða upphæð hvert félag skuli bjóða borginni og þær tölur stóðust þegar uppi var staðið. Þá er samráðið staðfest í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Einnig að tekin hafi verið sameiginleg ákvörðun um að Skeljungur ætti að fá viðskiptin og hvernig hagnaðinum yrði nákvæmlega skipt á milli félaganna. Vilhjálmi hefur verið falið að undirbúa kröfugerðina fyrir hönd borgarinnar og hann telur að það taki um fjórar til sex vikur. Í hans verkahring kemur væntanlega að meta og færa sönnur á þá upphæð sem borgin tapaði vegna samráðsins og hvort stefna eigi olíufélögunum þremur, þar eð þau nutu öll hagnaðarins eða Skeljungi einum. Talið er að viðskiptin hafi numið um 400 milljónum króna vegna Strætisvagna Reykjavíkur og um 160 milljónir vegna Véla- og malbikunarstöðvarinnar. Það er ljóst á öllu að lögfræðingar olíufélaganna verða ekki aðgerðarlausir næstu misserin. Fjármálaráðherra hefur sagt rétt að skoða réttarstöðu ríkisins til skaðabóta. Landssamband Íslenskra útvegsmanna undirbýr skaðabótamál og það sama er uppi á teningnum hjá Alcan, Icelandair, FÍB og Neytendasamtökunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×