Fá allt að 400 þúsund ofan á laun 17. janúar 2005 00:01
Dæmi eru um að fyrrverandi ráðherrar sem gegna sendiherrastöðu geti haft allt að fjögur hundruð þúsund krónur ofan á laun sendiherra sem eru um milljón á mánuði. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að sjö fyrrverandi ráðherrar fá greidd eftirlaun þrátt fyrir að vera í fullu starfi á vegum ríkisins. Á síðasta ári greiddi ríkið samtals sautján milljónir í eftirlaun til þessara ráðherra. Ný lög um eftirlaun sem samþykkt voru á Alþingi í árslok 2003 gera ráð fyrir því að ráðherrar og alþingismenn geti farið á eftirlaun við sextugt. Eftirlaun þeirra eru þá þrjú prósent af þingafararkaupi fyrir hvert ár á þingi og sex prósent af ráðherraviðbót fyrir hvert ár á ráðherrastól. Svavar Gestsson, sendiherra í Svíþjóð, stendur á sextugu og getur því farið á eftirlaun. Hann sat í tuttugu og eitt ár á þingi og sjö ár sem ráðherra. Eftirlaun hans að frádregnu hálfu prósenti fyrir hvern mánuð fram að 65 ára aldri gera því 273 þúsund ofan á milljón króna sendiherralaun. Jón Baldvin Hannibalsson, sem er 65 ára, getur þannig fengið 388 þúsund ofan á sendiherralaunin og Kjartan Jóhannsson, sem var ráðherra í tvö ár og ellefu ár á þingi, getur fengið 191 þúsund á mánuði. Þessar tölur hafa ekki fengist staðfestar hjá ráðherrunum og ekki heldur hvaða fyrrverandi ráðherrar eru á fullum launum og eftirlaunum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Fleiri fréttir Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Sjá meira