Skoðun

Örar breytingar á fasteignamarkaði

Þeir eru til sem kenna Íbúðalánasjóði og þá einkum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum á síðasta ári (sem raunar leiddi af sér 1 prósent lækkun á langtímavöxtum) um þensluna í hagkerfinu. Það er að mínu mati mikil einföldun.

Líklegt er að breytingar á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs sumarið 2004, breytt eignarhald bankanna og aukinn styrkur þeirra hafi flýtt fyrir þeirri þróun að bankar og sparisjóðir buðu upp á íbúðalán í samkeppni við Íbúðalánasjóð í ágúst 2004. Ljóst er að þeir voru misvel undir samkeppnina búnir en í ljósi yfirlýsinga banka og sparisjóða um mikilvægi útlána með fasteignaveði fyrir eignasafn þeirra og heildstæða þjónustu við viðskiptavini sína var ekki spurning um hvort heldur hvenær bankar og sparisjóðir gerðu sig gildandi á íbúðalánamarkaði.

Í þessu sambandi má minna á að ríkisstjórnin fyrirhugaði að innleiða 90 prósent húsnæðislán ÍLS í áföngum á kjörtímabilinu sem breyttist við innkomu banka og sparisjóða á markaðinn. Það er því ljóst að ábyrgð banka og sparisjóða sem riðu á vaðið, með lán umfram þau hámörk sem ÍLS hafði sett sér, er mikil í þróun fasteignaverðs síðustu missera. Því til stuðnings má benda á að útlán Íbúðalánasjóðs í fyrra voru um 70 til 80 milljarðar króna sem er í takti við útlán sjóðsins undan­farin ár. Samtímis hafa útlán bankanna vegna húsnæðislána verið á bilinu 260 til 280 milljarðar króna. Sá málflutningur að Íbúðalánasjóður beri mesta ábyrgð á því að hér fari verðbólgan hækkandi er því hæpin. Eflaust á sjóðurinn sinn þátt í því en það verður hver að taka það sem hann á í þessum efnum og þar eru bankar og sparisjóðir engin undantekning.

Hin mikla hækkun fasteignaverðs er að öllum líkindum skamm­tímaáhrif vegna þeirra breytinga sem átt hafa sér stað á íbúðalánamarkaði. Til lengri tíma litið mun markaðurinn leita jafnvægis líkt og í þeim ríkjum sem við miðum okkur við. Það sem veldur mér hins vegar áhyggjum er að einstaklingum virðist hafa verið hleypt of langt í útlánum bankanna í stríði þeirra við Íbúðalánasjóð. Því miður styðja tölur Ráðgjafastofu heimilanna um aukin vanskil fólks það. Ég hef hvatt fólk til að fara varlega í lántökum en því miður hefur það orðið svo að margir hafa notað þessi auknu húsnæðislán í beina neyslu. Hætt er við að timburmennirnir verði harkalegir hjá mörgum en vonandi fer fólk að staldra við og láta skynsemina ráða.

Lánastofnanir virðast einnig vera að taka við sér og fagna ég því að Landsbankinn er búinn að lækka lánshlutfall sitt og grípur hann til þeirra aðgerða til að draga úr hættu á því að viðskiptavinir bankans lendi í þeirri stöðu að lán þeirra verði hærri en markaðsverðmæti eignarinnar. Vonandi mun markaðurinn fljótlega ná jafnvægi og hafa hjaðnandi áhrif á verðbólguna.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×