Innlent

Enn engar upplýsingar

Engar nýjar upplýsingar hafa borist lögreglunni í Kópavogi um brottnám níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi. Friðrik segir málinu haldið opnu þótt ekki sé sami þungi í rannsókn þess eins og í fyrstu þegar lögreglu voru að berast ábendingar frá fólki. Ábendingarnar snerust nær allar um menn sem féllu undir lýsingu stúlkunnar á manninum. Enginn hefur gefið sig fram sem segist hafa orðið vitni að því þegar maðurinn, sem sagðist vera lögreglumaður, lokkaði stúlkuna upp í bíl sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×