Jól

Föndruðu kort fyrir borgarstjóra

Um 100 krakkar úr fyrstu bekkjum Melaskóla sem sækja frístundaheimilið tóku sig til og föndruðu stærðarinnar jólakort handa Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra. 

Kortið, sem er gert úr nokkrum síðum af stóru kartoni, var skreytt myndum eftir öll börnin og tók föndurgerðin um þrjá daga. Steinunn Valdís kom svo í heimsókn í gær til að taka við kortinu. 

Ásta Friðriksdóttir, leiðbeinandi í Selinu, segir að auk jólakveðjunnar hafi jólakortið verið þakklætisvottur til borgarstjóra fyrir þjónustu frístundaheimilanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×