Innlent

Falsaði kaupverð

Maður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur til greiða 80 þúsund krónur í sekt fyrir skjalafals og tollalagabrot. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur tíu daga fangelsi hennar í stað. Maðurinn falsaði afrit af sölutilboði rafmagnsgítars með því að breyta verði gítarsins úr 860 evrum í 220 og reyndi því að komast hjá rúmlega fimmtán þúsund króna aðflutningsgjöldum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×