Innlent

Skriður á sölu Landsvirkjunar

Viðræður um sölu hluta Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun til ríkisins halda áfram. Fundað var með iðnaðarráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, á þriðjudag. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir skrið kominn á málið: "Þetta er gríðarlega stórt mál og skiptir tugum milljóna króna. Við höfum ekkert í hendi með tímasetningar en það liggur heldur ekkert á," sagði Steinunn. Um efnisinntök viðræðnanna væri ekki tímabært að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×