Viðskipti innlent

Verðhugmyndir upp á 40 milljarða

Baugur komst skrefinu nær því að eignast breska stórfyrirtækið Big Food Group í dag. Stjórn fyrirtækisins lýsti því yfir opinberlega að kæmi tilboð upp á 95 pens á hlut yrði mælt með því og er Baugi gefinn frestur til 17. desember til að gera formlegt tilboð. Verðhugmyndirnar eru sem sagt rúmlega 40 milljarðar króna sem er fimm milljörðum minna en í upphafi viðræðna. Gangi það eftir eignast íslenskir fjárfestar fyrirtæki með veltu sem jafnast á við 80% þjóðarframleiðslu Íslands.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×