Viðskipti innlent

Jón stjórnarformaður Magasin du N.

Jón Ásgeir Jóhannesson verður nýr formaður stjórnar dönsku verslunarkeðjunnar Magasin du Nord. Tillaga um nýja stjórn fyrirtækisins var kynnt í dönskum fjölmiðlum í morgun. Samkvæmt henni taka fimm Íslendingar sæti í stjórn þessarar rótgrónu 136 ára gömlu dönsku verslunarkeðju. Þrír þeirra koma frá Baugi: Jón Ásgeir, Skarphéðinn Berg Steinarsson og Jón Björnsson. Guðmundur Þórðarson verður fulltrúi Straums og Birgir Bíltfedt frá B2B Holding. Auk þeirra verða þrír fulltrúar danskra fyrirtækja í stjórn Magasin. Aukaaðalfundur fyrirtækisins verður haldinn á föstudag og þar verður ný stjórn þess kosin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×