Viðskipti innlent

Fastir vextir LSR-lána lækka

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga hafa lækkað fasta vexti LSR-lána í 4,15%, frá og með deginum í dag. Eftir sem áður er ekki gerð krafa um fyrsta veðrétt, ekki er krafist uppgreiðslugjalds þó lán sé greitt upp að hluta eða öllu leyti fyrir umsamda gjalddaga og vaxtakjör lánanna eru ótengd öðrum viðskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lífeyrissjóðunum.  Alls eiga nú um sjötíu þúsund sjóðfélagar LSR og LH rétt á LSR lánum. Vextir LSR-lána með breytilegum vöxtum breytast ekki nú en munu verða endurskoðaðir fyrir næsta reglulega vaxtabreytingardag sem er 1. janúar nk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×