Lífið

Úrvalið alltaf að aukast

Alltaf fjölgar þeim borðplötuefnum á markaðinum sem úr er að velja og eitt þeirra fyrirtækja sem eru sterk á því sviði er steinsmiðjan S. Helgason í Kópavogi. Hefðbundið ítalskt granít og sömuleiðis granít frá Kína og Indlandi er þar til í ýmsum myndum og á mismunandi verði og marmari einnig. Nýjustu tegundirnar eru hinsvegar Hi-Macs sem er úr náttúrulegum steinefnum að 2/3 hlutum en akrýl að 1/3. Þetta efni kemur frá Kóreu að sögn sölufulltrúans Ásgeirs Ólafssonar. Það er til í mismunandi þykktum og litaúrvalið er breitt auk þess sem vaskar fást í sömu tónum. Efnið er sniðið til á verkstæðinu og Ásgeir segir það lagt á borðin þannig að það sé samskeytalaust. "Þetta hentar vel á eldhúsborð en hefur líka verið vinsælt á rannsóknarstofur og sjúkrastofnanir því það er algerlega lokað og dregur ekki í sig bakteríur, sýrur eða litarefni," segir hann og bendir á að efnið geti líka náð upp á veggi ef fólk vilji og sé gott í sturtuklefa. Stone Italiana er önnur grjóthörð gerð borðefnis sem líka er til í flísum, bæði á gólf og veggi. Ásgeir segir hana gerða úr kvars steini að langstærstum hluta (93-95%) en afgangurinn sé bindiefni sem loki steininum algerlega. Stone Italiana fæst í tugum lita og Ásgeir segir framleiðendur varla hafa undan því eftirspurnin sé slík. Rein ehf. Steiniðnaður sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á vörum úr íslensku og innfluttu grjóti. Stefán Örn Magnússon segir granítið vinsælt borðefni og hann flytur það inn frá ýmsum löndum, bæði í Evrópu og Asíu. Rein býður líka borðplötur úr íslensku grágrýti. Þær þykja flottar og eru á sambærilegu verði og hið erlenda efni. Rein er með höfuðstöðvar sínar á Kjalarnesi en með sýningaraðstöðu í Síðumúla 17, hjá versluninni Ísspar.
Nero Assaluto granít er ítalskt.Mynd/Vilhelm
Hi-Macs er heitasta efnið núna hjá S. Helgason.Mynd/Vilhelm
Stone Italiana fæst í tugum lita hjá S. Helgason.Mynd/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.