Innlent

Síbrotamaður í fangelsi

Hæstiréttur mildaði þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir síbrotamanni í tveggja og hálfs árs fangelsi. Maðurinn var sakfelldur fyrir hylmingu, níu þjófnaðarbrot, eina tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot. Maðurinn hafði frá árinu 1979 til ársins 2000 hlotið 27 dóma. Þrír dómanna höfðu ítrekunaráhrif. Frá dómnum dregst 54 daga gæsluvarðhald sem maðurinn sætti í maí og júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×