Innlent

Eldur tekur jóðsótt ...

Fjölmennt slökkvilið var sent að verksmiðju Lýsis við Grandaveg um klukkan fimm í morgun eftir að nágranni verksmiðjunnar tilkynnti um eld og reyk í húsinu. Þegar til kom sást þar ekkert athugavert nema hvað laus járnplata blakti í vindinum og var hún fest. Þetta telst þó ekki vera gabb því tilkynnandinn telur sig eftir sem áður hafa séð eitthvað sem hann taldi eld og gerði hann enga tilraun til að hylja slóð sína



Fleiri fréttir

Sjá meira


×