Innlent

Héraðsdómur klofnaði í málinu

Rúnar Ben Maitsland var dæmdur í fimm ára fangelsi í dag fyrir innflutning á fíkniefnum. Tvíburabróðir hans, Davíð Ben Maitsland, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur Reykjavíkur klofnaði í niðurstöðu sinni en einn af þremur dómurum vildi sýkna bræðurna.  Málið er hluti af fíkniefnamáli sem Hæstiréttur dæmdi í á síðasta ári. Rúnar Ben hlaut þá fimm ára fangelsisdóm fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Hann var þá á skilorði vegna fjögurra ára dóms, einnig vegna fíkniefnabrots. Nú var réttað vegna 27 kílóa af hassi sem ekki var lagt hald á. Ákæran byggði á framburði erlendra aðila sem tekin var upp í gegnum síma. Sýnt þykir að tvíburabróðir Rúnars, Davíð Ben, hafi tekið við hluta af efninu. Hvorki Rúnar né Davíð voru viðstaddir dómsuppsögu í dag en báðir höfðu neitað sök. Tveir dómarar af þremur töldu framburð þeirra bræðra ótrúverðugan og að gögn málsins sanni að þeir hafi staðið að smyglinu í tíu ferðum hingað til lands, með flugi og skipi. Efnin, sem að götuverðmæti eru um 50 milljónir króna, hafi svo verið seld. Þriðji dómarinn, Guðjón Marteinsson, vildi hins vegar sýkna þá bræður á þeim forsendum að vitni hafi ekki fengist til að koma fyrir dóm og engin gögn liggi fyrir um það hvað varð um efnin, enda hafi enginn kaupandi verið yfirheyrður. Verjandi Rúnars, Ólafur Sigurgeirsson,  tekur undir þá niðurstöðu og býst fastlega við að dóminum verði áfrýjað. Hann segir mjög sérstakt að sakfellt sé í málinu þar sem haldlögð fíkniefni séu engin, ekkert vitni hafi komið fyrir dóminn og engir peningar, sala, uppsetning eða dreifing liggi fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×