Innlent

Ætlar ekki að áfrýja

Magnús Einarsson, sem banaði Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sinni og móður tveggja barna, hefur ákveðið að una gæsluvarðhaldsúrskurði sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Magnús játaði strax að hafa orðið Sæunni að bana en staðfest hefur verið að hún lést þar sem þrengt var að öndunarvegi hennar. Vettvangsrannsókn í Hamraborginni lauk í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins var Magnús ekki til heimilis í Hamraborg þegar hann banaði Sæunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×