Innlent

Andlát á Kópaskeri í rannsókn

Aldraður maður lést í bílslysi á Kópaskeri laust fyrir hádegi í gær. Málið er í rannsókn lögreglunnar á Húsavík þar sem ekki er ljóst hvort maðurinn hafi verið látinn áður en óhappið átti sér stað. Lögreglan segir að samkvæmt sjónarvottum sé ljóst að maðurinn hafi orðið fyrir áfalli. Þeir hafi orðið vitni að því er bíllinn keyrði niður í fjöruborðið við aðalgötu bæjarins. Úrskurða þurfi um dánarorsök. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×