Innlent

Áfram í gæsluvarðhaldi

Hákon Eydal, banamaður Sri Rahmawati, var úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til tólfta janúar næstkomandi. Hákon var fyrst úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald sjöunda júlí sem síðar hefur síðan verið framlengt nokkrum sinnum. Hákon hefur játað að hafa orðið Sri að bana með kúbeini. Mikil leit var gerð að líki Sri og vísaði Hákon á rangan stað í fyrstu en nokkur tími leið þar til líkið fannst í hraunsprungu sunnan Hafnarfjarðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×