Innlent

Gæsluvarðhalds krafist

Lögreglan í Reykjavík fer í dag fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa stungið tæplega fertugan karlmanna á hol í húsi við Hverfisgötu í nótt. Fólk sem átti leið um Laugaveginn um klukkan tvö í nótt fann manninn liggjandi á götunni, nær meðvitundarlausan, með svo mikinn og djúpan skurð á kviði að hluti innyfla lá úti. Maðurinn var þegar fluttur á slysadeidina þar sem hann gekkst strax undir aðgerð upp á líf eða dauða sem tókst vel og er hann ekki lengur í lífshættu. Skömmu síðar tókst lögreglumönnum að rekja blóðslóðina að íbúðarhúsi þar sem árásarmaðurinn var.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×