Erlent

Mikilvægustu kosningar ævinnar

Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC. 86 prósent aðspurðra segja kosningarnar á morgun sérstaklega mikilvægar. Fyrir fjórum árum sögðust 67 prósent aðspurðra telja þær kosningar sérstaklega mikilvægar og aðeins 60 prósent töldu forsetakosningarnar 1996 sérstaklega mikilvægar. Sama könnun sýnir að 53 prósent spá Bush sigri en 33 prósent telja Kerry sigurstranglegri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×