Bíó og sjónvarp

Handhafar Eddu 2003

Edduverðlaunin 2003 fóru fram á Nordica hotel, föstudagskvöldið 10. október við hátíðlega athöfn. Eftirtalin verk og einstaklingar hlutu Edduverðlaunin árið 2003:

LEIKARI ÁRSINS: Tómas Lemarquis fyrir Nóa albínóa

LEIKKONA ÁRSINS: Sigurlaug (Didda) Jónsdóttir fyrir Stormviðri

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Nóa albínóa

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI: Edda Heiðrún Backman fyrir Áramótaskaupið 2002

SJÓNVARPSÞÁTTUR ÁRSINS: Sjálfstætt fólk Umsjón: Jón Ársæll Þórðarsson. Dagskrárgerð: Jón Ársæll Þórðarsson og Steingrímur Jón Þórðarson. Framleiðandi: Stöð 2

SJÓNVARPSFRÉTTAMAÐUR ÁRSINS: Ómar Ragnarsson Sjónvarpinu

HEIMILDARMYND ÁRSINS: Hlemmur Stjórnandi : Ólafur Sveinsson. Framleiðendur: Gerd Haag, Ólafur Sveinsson

HLJÓÐ OG MYND: Sigurrós fyrir tónlist í Hlemmi

ÚTLIT MYNDAR: Jón Steinar Ragnarsson fyrir leikmynd í Nóa albinóa

HANDRIT ÁRSINS: Dagur Kári Pétursson fyrir Nóa albinóa

LEIKSTJÓRI ÁRSINS: Dagur Kári Pétursson fyrir Nóa albinóa

BÍÓMYND ÁRSINS: Nói albínói Leikstjóri: Dagur Kári Pétursson. Handrit: Dagur Kári Pétursson. Framleiðendur: Skúli Malmquist og Þórir Snær Sigurjónsson/Zik Zak kvikmyndir.

STUTTMYND ÁRSINS: Karamellumyndin Leikstjóri : Gunnar B. Guðmundsson. Handrit: Gunnar B. Guðmundsson. Framleiðandi: Davíð Már Bjarnason, Óskar Þór Axelsson/Þeir tveir

TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS: Mess it up (Quarashi) Leikstjóri : Gaukur Úlfarsson. Framleiðandi: Skífan

HEIÐURSVERÐLAUN 2003: Knútur Hallsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri fyrir framlag sitt til kvikmyndamála á Íslandi

SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS: Gísli Marteinn Baldursson

FRAMLAG ÍSLANDS TIL ÓSKARSFORVALS: Nói albínói







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.