Bíó og sjónvarp

Handhafar Eddu 1999

Fyrsta afhending Edduverðlaunanna fór fram í Borgarleikhúsinu þann 15. nóvember 1999 og var hátíðin send beint út á Stöð 2.

Niðurstöður voru sem hér segir:

KVIKMYND ÁRSINS: Ungfrúin góða og húsið

Framleiðendur: Halldór Þorgeirsson, Snorri Þórisson, Erik Crone, Christer Nilson.

Leikstjórn og handrit: Guðný Halldórsdóttir

LEIKARI ÁRSINS: Ingvar. E. Sigurðsson fyrir Slurpinn & co (stuttmynd)

LEIKKONA ÁRSINS: Tinna Gunnlaugsdóttir fyrir Ungfrúna góðu og húsið.

LEIKSTJÓRI ÁRSINS: Guðný Halldórsdóttir fyrir Ungfrúna góðu og húsið.

LEIKIÐ SJÓNVARPSVERK ÁRSINS: Fóstbræður

Framleiðandi: Óskar Jónasson fyrir Stöð 2.

Leikstjóri: Óskar Jónasson.

SJÓNVARPSÞÁTTUR ÁRSINS: Stutt í spunann

Upptökustjórn: Jón Egill Bergþórsson fyrir Sjónvarpið.

Umsjón og dagskrárgerð: Eva Maria Jónsdottir and Hjálmar Hjálmarsson.

HEIMILDAMYND ÁRSINS: Sönn íslensk sakamál

Framleiðendur: Björn Brynjúlfur Björnsson og Viðar Garðarson fyrir Hugsjón.

Leikstjóri: Björn Brynjúlfur Björnsson.

Handrit: Sigursteinn Másson.

FAGVERÐLAUN:

Ragna Fossberg fyrir förðun í Ungfrúnni góðu og húsinu og Dómsdegi (sjónvarpsmynd).

Hilmar Örn Hilmarsson fyrir tónlist í Ungfrúnni góðu og húsinu.

Þórunn María Jónsdóttir fyrir búninga í Dansinum.

HEIÐURSVERÐLAUN: Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur og framleiðandi

FRAMLAG ÍSLANDS TIL FORVALS ÓSKARSINS: Ungfrúin góða og húsið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.