Bílabúð Benna 25. október 2004 00:01
Um helgina verður Evrópufrumsýning á nýrri línu Chevrolet-bíla hjá Bílabúð Benna. General Motors, stærsti bílaframleiðandi í heimi, hefur ákveðið að bjóða þekktasta merki sitt, Chevrolet, um allan heim. Chevrolet hefur keypt Daewoo-verksmiðjurnar í Kóreu og mun frá áramótum hætta að framleiða bíla undir merki Daewoo. Í tilefni af þessum breytingum hefur verið hönnuð ný lína, Chevrolet Lacetti, sem keppa á við japanska og evrópska bíla. Bílarnir eru ríkulega búnir og á góðu verði. Bílabúð Benna kemur til með að bjóða þessa nýju línu á Ísland. Lacetti CDX station er til dæmis gríðarlega vel búinn og rúmgóður fjölskyldubíll á afar hagstæðu verði, eða 1.789 þúsund kr. með 1,8 lítra vél. Allur frágangur er eins og best gerist í mun dýrari bílum. Nýr lúxusjeppi er væntanlegur frá Chevrolet árið 2006, en hann var sýndur og fékk mikla athygli á alþjóðlegu bílasýningunni í París í september. Þar er á ferðinni sjö manna fullkominn jeppi sem fæst bæði með bensínvél og óvenjuöflugri dísilvél. Á næsta ári verður Bílabúð Benna 30 ára. Á þeim tímamótum flytur fyrirtækið í nýtt, stórt og glæsilegt húsnæði að Tangarhöfða 8 - 12, gegnt Húsgagnahöllinni. Þjónusta verður öll aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini, sýningaraðstaða batnar og plássið eykst. Í nýja húsnæðinu verður öll sala á nýjum bílum, Porsche, Chevrolet og SangYong, ásamt hluta annarar þjónustu fyrirtækisins. Opið verður frá kl. 12 til 16 í dag og á morgun í framtíðarhúsnæðinu að Tangarhöfða 8. Þar verða, auk nýju línunnar frá Chevrolet, sýndir bæði keppnisbílar og fornbílar frá Chevrolet. Á staðnum verður einnig litaleikur fyrir börn og ýmislegt fleira til skemmtunar.
Bílar Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira