Verðbólgan hækkar 12. október 2004 00:01
Verðbólgan fer vaxandi á Íslandi og nálgast nú þolmörk Seðlabankans. Ný vísitala neysluverðs sýnir að verðbólga á ársgrundvelli er nú 3,7 prósent en á sama tíma í fyrra var hún 2,2 prósent á ársgrundvelli. Að sögn Tryggva Eiríkssonar hjá Hagstofu Íslands vegur þyngst í hækkuninni að verð á fötum og skóbúnaði hækkaði um 6,2 prósent milli mánaða. "Það má segja að útsölulokin hafi ekki verið komin alla leið til baka í síðasta mánuði," segir Tryggvi. Verð á matvælum er nánast óbreytt á milli mánaða en rekja má um níutíu prósent hækkunarinnar nú til hækkunar á fötum, húsnæði og kostnaði við rekstur bíls. Greiningardeild Íslandsbanka segir í Morgunkorni í gær að vísitöluhækkunin sé nokkuð meiri en spáð var. Það skýrist að stærstum hluta með hækkunum á húsnæðisverði að mati Íslandsbanka. Íslandsbanki telur að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,5 til 0,7 prósentustig á næstunni og að um miðbik næsta árs verði stýrivextir komnir í átta prósent. Þeir eru nú 6,75 prósent.
Viðskipti Mest lesið Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Viðskipti innlent Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Viðskipti innlent Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Viðskipti innlent Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Neytendur Hagkaup hefur áfengissölu í dag Viðskipti innlent Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Neytendur Arion banki hækkar vexti hressilega Neytendur Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Atvinnulíf Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Neytendur Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagkaup hefur áfengissölu í dag Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða Þungur róður hjá Samstöðinni Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Félagar opna Fiskbúðina við Sundlaugaveg á ný Eyrún og Þorgils til SI Play bætir við áfangastað í Króatíu Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Mannlíf sektað vegna tóbaksauglýsinga Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Sætanýtingin aldrei verið betri Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play Fimm ára samningar heyra sögunni til hjá Ölmu Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Eigandi BL tekur við forstjórastólnum á nýjan leik Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Farþegum fjölgaði um tíu prósent í ágúst Sjá meira