Viðskipti innlent

Sameining um áramótin

Stefnt er að sameiningu SPRON og Sparisjóðs Vélstjóra um áramótin. Forystumenn sjóðanna vonast til að fá fleiri sparisjóði til liðs við sig í framhaldinu. Enda þótt samrunanefnd, skipuð stjórnarformönnum og endurskoðendum beggja sparisjóða, eigi eftir að taka til starfa eru menn langt komnir með sameininguna. Þegar liggur nefnilega fyrir skiptahlutfall við sameiningu en stjórnir sjóðanna hafa komið sér saman um að Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis verði með sextíu prósenta hlut en Sparisjóða Vélstjóra með fjörutíu. Stjórnarformennirnir tveir, Óskar Magnússon hjá SPRON og Jón Þorsteinn Jónsson hjá SPV, eru sammála um að þetta sé rétta leiðin til að fara því stærri eining sé betur í stakk búin til að bjóða hagstæðari kjör. Lagasetningin í vor hafi að þeirra mati múrað sparisjóðina inni sem þýði að leiðin til að stækka sé aukin samvinna innan sparisjóðafjölskyldunnar. Skiptar skoðanir hafa einmitt verið um þessa hluti milli stjórnenda sparisjóða, í reynd tvær fylkingar. SPRON tilheyrði annarri en SPV hinni. Þessi viljayfirlýsing sem birt var í dag sendir því klár skilaboð til hinna. Óskar Magnússon, stjórnarformaður SPRON, segir þetta senda merki um það að þessum fylkingum eigi að ljúka. Stjórnarformennirnir segja lengi hafa legið í loftinu að hagræða þyrfti í sparisjóðakerfinu, en að aukin samkeppni á íbúðalánamarkaði hafi ýtt við þeim. Staða þessarra tveggja sjóða sé þó góð en eiginfjárstaða þeirra saman sé yfir hundrað milljarðar króna. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður SPV, segir þá vera bjartsýna - annars stæðu þeir ekki í þessu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×