Viðskiptin aldrei verið fleiri 5. október 2004 00:01
Viðskipti í Kauphöll Íslands hafa aldrei verið fleiri á fyrstu þremur fjórðungum ársins samkvæmt viðskiptayfirliti Kauphallarinnar eða 1.515 talsins. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans nú síðdegis. Mikil velta hefur verið á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði á árinu og hefur hvert veltumetið á fætur öðru fallið. Heildarvelta hlutabréfa á árinu nemur 465 milljörðum króna sem er 24% aukning frá sama tíma í fyrra. Nýliðinn septembermánuður var veltumesti mánuður frá upphafi og var veltan 99 milljarðar króna. Veltuhæsti dagur frá upphafi var einnig í september, nánar tiltekið þann 30. september, þegar heildarvelta hlutabréfa nam 33 milljörðum króna. Þessa miklu veltu má rekja til eignabreytinga á Íslandsbanka samkvæmt Landsbankanum. Meðalvelta á dag var 2,5 milljarða króna það sem af er ári en til samanburðar var meðalvelta 2 milljarðar á dag á sama tímabili í fyrra. Það sem af er ári er veltuaukning á skuldabréfamarkaði 31% miðað við sama tímabil í fyrra, en heildarvelta með skuldabréf og víxla nemur 1.050 milljörðum króna á árinu. Meðalvelta var 5,6 milljarðar á dag fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins en meðalveltan var 4,4 milljarðar á dag á sama tímabili í fyrra. Mesta dagsvelta fyrstu níu mánuði ársins var þann 10. júní þegar veltan nam 19,5 milljörðum króna. Mesta dagsvelta þriðja ársfjórðungs var þann 24. ágúst þegar veltan var 17,1 milljarðar íslenskra króna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Viðskipti innlent Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Viðskipti innlent Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Viðskipti innlent Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Neytendur Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Neytendur Arion banki hækkar vexti hressilega Neytendur Hagkaup hefur áfengissölu í dag Viðskipti innlent Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Atvinnulíf Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Neytendur Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagkaup hefur áfengissölu í dag Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða Þungur róður hjá Samstöðinni Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Félagar opna Fiskbúðina við Sundlaugaveg á ný Eyrún og Þorgils til SI Play bætir við áfangastað í Króatíu Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Mannlíf sektað vegna tóbaksauglýsinga Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Sætanýtingin aldrei verið betri Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play Fimm ára samningar heyra sögunni til hjá Ölmu Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Eigandi BL tekur við forstjórastólnum á nýjan leik Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Farþegum fjölgaði um tíu prósent í ágúst Sjá meira