Viðskipti innlent

Með breiðþotu til Frisco

Flugleiðir ætla að hefja áætlunarflug til San Francisco næsta vor. Flugleiðir munu samhliða því taka í notkun breiðþotu af gerðinni Boeing-767 sem tekur 270 farþega. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða segir þessa útvíkkun leiðakerfisins marka ákveðin tímamót. "Við erum með þessu flugi að opna nýja leið til og frá einhverri þekktustu og vinsælustu borg heims og með því að taka langdræga breiðþotu inn í áætlunarflugið og þróa tengistöð okkar á Keflavíkurflugvelli erum að leggja grunn að enn frekari útrás. Þessi ákvörðun um vöxt byggir á traustri stöðu fyrirtækisins og er í samræmi við þá stefnu okkar að efla starfsemina með arðbærum hætti og fjölga ferðamönnum á Íslandi." Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða segir markaðsrannsóknir sýna að mikill áhugi sé fyrir Ísalandi sem ferðamannastað meðal Kaliforníubúa. Kalefornía er fjölmennasta fylki Bandaríkjanna og fimmta stærsta hagkerfi heims. Flugið frá San Francisco mun tengjast Evrópuflugi félagsins og styrkja samkeppnisstöðu á Norður Atlantshafsmarkaðnum.  einkum milli Norðurlandanna  og Bandaríkjanna. "Einnig leggur þessi ákvörðun að taka B767 flugvél inn í flotann og styrkja síðdegisflug út úr Keflavík ákveðinn grunn að frekari útrás Icelandair og íslenskrar ferðaþjónustu á áður fjarlæga markaði í Asíu t.d. hina hraðvaxandi risamarkaði í Kína og fleiri Asíulöndum þar sem við sjáum mikla möguleika.” Sætaframboð Flugleiða mun aukast um 20 prósent næsta sumar frá því sem var í ár. Þá var einnig 20 prósenta aukning milli ára. Flugleiðir gera ráð fyrir að aukið framboð kalli á 80 til 100 ný störf yfir sumarið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×