Halli vöruskipta 6,7 milljarðar 29. september 2004 00:01
Halli á vöruskiptum við útlönd heldur áfram að vaxa hröðum skrefum og nam 6,7 milljörðum króna í síðasta mánuði en var aðeins átta hundruð milljónir í sama mánuði í fyrra. Hann er því um það bil sjö sinnum meiri núna. Ef litið er aftur til áramóta var hallinn sáralítill fyrstu þrjá mánuðina. Hann tók svo kipp upp í 3,7 milljarða í apríl, stökk upp í 6,8 milljarða í júní og hefur verið yfir sex milljarðar á mánuði síðan. Frá áramótum er hallinn orðinn samtals tuttugu og sjö milljarðar en var 6,7 milljarðar á sama tíma í fyrra þannig að hann er rúmlega 20 milljörðum óhagstæðari nú en þá. Verðmæti útflutnings frá áramótum óx um 5,4 prósent. Efnahagssérfræðingar hafa spáð því að mikill og langvarandi viðskiptahalli muni um síðir veikja krónuna gagnvart öðrum gjaldmiðlum en þess sjást vart merki, enn sem komið er. Vöruútflutningur jókst um 5,4 prósent, sjávarafurðir um 4,4 prósent miðað við sama tíma í fyrra og iðnaðarvörur um 6,4 prósent, aðallega vegna lyfja og lækningavara. Innflutningurinn óx um tæp 27 prósent og varð vöxtur á öllum sviðum, mest þó í fjárfestingarvörum og flutningatækjum og munar þar talsvert um innflutning flugvéla upp á tæpa fjóra milljarða.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Viðskipti innlent Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Viðskipti innlent Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Viðskipti innlent Hagkaup hefur áfengissölu í dag Viðskipti innlent Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Neytendur Arion banki hækkar vexti hressilega Neytendur Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Neytendur Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Neytendur Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Atvinnulíf Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagkaup hefur áfengissölu í dag Ráðinn fjárfestatengill Icelandair Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða Þungur róður hjá Samstöðinni Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Félagar opna Fiskbúðina við Sundlaugaveg á ný Eyrún og Þorgils til SI Play bætir við áfangastað í Króatíu Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Mannlíf sektað vegna tóbaksauglýsinga Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Sætanýtingin aldrei verið betri Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play Fimm ára samningar heyra sögunni til hjá Ölmu Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Eigandi BL tekur við forstjórastólnum á nýjan leik Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Farþegum fjölgaði um tíu prósent í ágúst Sjá meira