Menning

Ævisaga Laxness á þýsku

Bókaforlagið JPV-útgáfa hefur samið við þýska forlagið Random House/Bertelsmann um að það gefi út ævisögu Halldórs Laxness eftir Halldór Guðmundsson á þýsku. Í tilkynningu frá forlaginu segir að einnig hafi verið samið um að bókin komi út í Svíþjóð og segir ennfremur að það sé sjaldgæft að íslenskar ævisögur séu seldar erlendum útgefendum, að ekki sé talað um áður en þær komi út á íslensku. Bókin er væntanleg á íslensku á næstu mánuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.