Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkað um 5,1%

Hagstofan birti í dag launavísitölu fyrir júlí og hækkaði hún um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,1% en á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 3,6%. Kaupmáttur launa hefur þar með aukist um 1,5% síðastliðna tólf mánuði. Það sem af er ári hefur kaupmáttur aukist að meðaltali um 1,4% sem er töluvert minni aukning heldur en á undanförnum árum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×