Sport

Dómurum vikið úr starfi

Búið er að víkja þremur dómurum fimleikakeppninnar á Ólympíuleikunum úr starfi. Það var Alþjóðafimleikasambandið sem tók þessa ákvörðun eftir að Suður-Kóreumenn höfðu kært störf dómara í fjölþraut karla. Gáfu dómararnir kóreskum keppanda of fá stig sem varð til þess að Bandaríkjamaðurinn Paul Hamm fór með sigur af hólmi. Með þessu viðurkennir fimleikasambandið að dómararnir hafi gert mistök en úrslit fjölþrautarkeppninnar munu þó standa óbreytt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×